08.07.2009

Yfirlýsing frá Nýja Kaupþingi vegna fjöl­miðlaum­fjöll­un­ar um lán­tak­endur

Vegna umfjöllunar fjölmiðla í gær og í dag um uppgjör skulda ákveðinna lántakenda hjá Nýja Kaupþingi óskar bankinn eftir að taka fram að starfsmönnum, bankastjóra og stjórn bankans er óheimilt skv. lögum að tjá sig opinberlega um málefni einstakra viðskiptavina.

Í ljósi þess að öryggi starfsmanna bankans hefur verið ógnað telur bankinn sér skylt að upplýsa eftirfarandi: Í máli sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hafa engar ákvarðanir um afskriftir verið teknar. Bankinn ítrekar að í hverju máli er unnið eftir ítarlegum verklagsreglum og að lögð er mikil áhersla á sanngjarna málsmeðferð öllum til handa.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira