11.11.2009
Yfirlýsing frá Slitastjórn SPRON um réttindi lántaka til að óska eftir öðrum úrræðum síðar
Slitastjórn SPRON lýsir því yfir að þeir viðskiptavinir bankans sem undirrita skilmálabreytingar húsnæðislána, t.d. vegna greiðslujöfnunar og frystingar, fyrirgeri ekki réttindum sínum til að óska eftir öðrum úrræðum síðar, þ.e. þeim sem bjóðast í framtíðinni, enda uppfylli þeir skilyrði fyrir nýtingu úrræðanna. Sama gildir um önnur réttindi sem neytendur kunna að njóta samkvæmt lögum. Skilmálabreyting á erlendu láni yfir í íslenskt er þó endanleg og verður ekki endurskoðuð síðar.