31.07.2009

Yfirlýsing vegna um­fjöll­un­ar RÚV um lán­tak­endur Kaupþings

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings vekja athygli á að upplýsingar um lántakendur hjá gamla Kaupþingi sem birtar voru á erlendri vefsíðu og fjallað var um í sjónvarpsfréttum RÚV eru trúnaðarupplýsingar. Birting þeirra er í andstöðu við ákvæði um þagnarskyldu í lögum um fjármálafyrirtæki.

Verið er rannsaka uppruna birtingarinnar. Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings ber skylda til að halda trúnaði við viðskiptavini sína og koma í veg fyrir að óviðkomandi hafi aðgang að viðskiptaupplýsingum þeirra. Því var ákveðið að fara fram á að upplýsingarnar yrðu fjarlægðar af síðunni. Fjármálaeftirlitinu hefur þegar verið gert viðvart um málið.

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja að upplýsingar um viðskiptavini Kaupþings eigi ekki erindi til almennings og sé brot á þeirri vernd sem bankaleynd á að veita viðskiptamönnum. Mikilvægt er að traust og trúnaður ríki milli fjármálastofnana og viðskiptavina. Með birtingu slíkra upplýsinga er því sambandi ógnað.

Í lögum um fjármálafyrirtæki segir um þagnarskyldu:

Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.

Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um þagnarskylduna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira