26.06.2009
Yfirtökutilboð til hluthafa í Alfesca
Lur Berri Iceland ehf. býður hluthöfum Alfesca hf. að kaupa hluti þeirra í félaginu
Þann 28. maí 2009 gerðu Lur Berri Holding SAS, Kjalar Invest B.V., Alta Food Holding B.V., Kaupthing Singer & Friedlander Ltd. (í greiðslustöðvun) og tilteknir stjórnendur Alfesca hf. (hér eftir nefndir „samstarfsaðilarnir“) með sér samninga um stjórn og rekstur Alfesca hf. (hér eftir nefnt „Alfesca“ eða „félagið“).
Samningar samstarfsaðilanna og kaup Lur Berri Iceland ehf. á hlutum í Alfesca hafa gert það að verkum að skylt er að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð, þ.e. að bjóðast til að kaupa hluti þeirra í Alfesca, í samræmi við 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, samanber X. og XI. kafla laganna. Lur Berri Iceland ehf., sem er íslenskt einkahlutafélag í eigu Lur Berri Holding SAS, gerir yfirtökutilboð byggt á skilmálum og skilyrðum sem sett eru fram í opinberu tilboðsyfirliti sem dagsett er 25. júní 2009 og birt opinberlega sama dag.
Nánari upplýsingar veita verðbréfaráðgjafar bankans í síma 444 7000.