Af hverju eru skuldabréfasjóðir skilgreindir í skammtíma- eða langtímasjóði?
Það fer eftir fjárfestingarstefnu hvers sjóðs fyrir sig.
Sumir eru skilgreindir sem skammtímasjóðir vegna þess að þeir fjárfesta í skuldabréfum með stuttan líftíma, t.d. 1-5 ár. Aðrir eru flokkaðir sem langtímasjóðir þar sem þeir fjárfesta í skuldabréfum með langan líftíma, þ.e. til fimm ára eða lengur.
Til skamms tíma er meiri hætta á sveiflum í ávöxtun í löngum sjóðum en stuttum sjóðum. Því er mikilvægt að val á milli kaupa í löngum eða stuttum sjóði sé byggt á réttum forsendum og taki mið af markmiðum og fjárhagsaðstæðum hvers og eins.
Ávöxtun
Sparnaður