Breyta úr óverðtryggðu láni yfir í verðtryggt lán
Endurfjármögnun úr óverðtryggðu yfir í verðtryggt íbúðalán getur lækkað mánaðarlega greiðslubyrði láns. Hægt er að endurfjármagna og færa bæði hluta láns eða allt lánið í verðtryggt form, allt eftir því hversu mikið þú vilt lækka greiðslubyrðina.
Gott er að hafa í huga að við greiðslumetum umsækjendur sem vilja endurfjármagna yfir í verðtryggð íbúðalán. Neikvæð niðurstaða greiðslumats þarf ekki að þýða að viðskiptavinum standi engin úrræði til boða en farið er yfir hvert mál fyrir sig.
Við leggjum áherslu á að finna heildstæða lausn sem getur m.a. falið í sér endurskipulagningu á lánum þínum þannig að greiðslubyrði taki mið af greiðslugetu.
Endurfjármögnun
íbúðalán