Er einhver lágmarksupphæð til að kaupa í sjóðum?

Hvernig get ég keypt og selt í sjóðum Stefnis?

Hægt er að kaupa og selja í sjóðum Stefnis í gegnum Arion appið og netbanka Arion. Veittur er 25% afsláttur af gengismun og afgreiðslugjald er fellt niður ef viðskipti eru framkvæmd í Arion appinu eða netbanka Arion. Einnig er hægt að hafa samband við verðbréfaþjónustu Arion í síma 444 7000.Til þess að geta átt viðskipti með sjóði þarftu að eiga vörslusafn. Hægt er að stofna vörslusafn hjá Arion banka með rafrænum skilríkjum.Rafræna ferlið er eftirfarandi fyrir nýja viðskiptavini:

  • Skref 1. Koma í verðbréfaviðskipti

  • Skref 2. Framkvæma viðskipti í gegnum Arion appið eða netbanka Arion

Arion appið er opið öllum allan sólarhringinn og er þægileg leið til að eiga viðskipti með sjóði Stefnis og fylgjast með stöðu sjóða.Kaupa í sjóðum Stefnis:

  • Í appinu:

     

    Farið er í Arion appið, vörslusafnið valið á upphafsskjánum. Þar er smellt á „verðbréf og því næst á „sjóðir“, þar kemur listi yfir sjóðina og smellt er á þann sjóð sem kaupa á í. Því næst þarf að smella á „kaupa“. Upphæð stimpluð inn og kaupin staðfest.

  • Í netbanka:

     

    Farið er í netbanka Arion banka. Á valstikunni vinstra megin er smellt á „verðbréf“. Næsta skref er að smella á „Sjóðir“. Þar kemur listi yfir sjóðina og smellt á „kaupa“ lengst til hægri. Upphæð stimpluð inn og kaupin staðfest.

Ávöxtun
Sparnaður
Er einhver lágmarksupphæð til að kaupa í sjóðum? - Arion banki