Er hægt að nota greiðslumat Arion banka hjá öðrum lánveitendum?
Já, en betra er að kanna fyrir fram hvort lánveitandi taki það gilt. Ekki er öruggt að allir lánveitendur samþykki greiðslumat frá Arion banka.
Ef greiðslumat er framkvæmt vegna lánveitinga hjá öðrum en Arion banka, Frjálsa lífeyrissjóðnum eða EFÍA þá þarf að fá greiðslumatið undirritað og greiða fyrir það samkvæmt verðskrá bankans. Hægt er að fá greiðslumatið undirritað rafrænt og í framhaldi sent í tölvupósti eða á pappír og sækja það í næsta útibú.
Greiðslumat
íbúðalán