Get ég farið með ökutæki úr landi ef ég er með bílalán?

Að uppfylltum vissum skilyrðum heimilar Arion banki flutning ökutækis úr landi á meðan samningur er virkur. Við bendum viðskiptavinum okkar á að hafa samband við ráðgjafa Arion banka með góðum fyrirvara og óska eftir skriflegu leyfi hyggi þeir á ferðalag með ökutækið fyrir utan landsteina. Eftirlit er hjá Norrænu og öðrum skipafélögum og þarf að framvísa skriflegu leyfi við skipshlið. Kostnaður við leyfi til útflutnings er kr. 15.000.

Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla:

  • Samningur eða lán umsækjanda þarf að vera í skilum

  • Samningur þarf að vera í beingreiðslum

  • Að lágmarki 12 mánuðir séu liðnir frá gerð samnings/láns

  • Greiðslusaga umsækjanda þarf að vera góð undanfarna 12 mánuði

  • Umsækjandi má ekki vera á vanskilaskrá

Það sem þarf að fylgja umsókn er eftirfarandi:

  • Afrit af vegabréfi

  • Græna kortið frá tryggingafélagi (ábyrgðar-kaskótrygging auk þjófnaðartryggingar á meðan dvöl stendur). Græna kortið er gefið út af tryggingafélögum

  • Staðfesting frá skipafélagi um að flutningskostnaður til og frá Íslandi hafi verið greiddur

Ráðgjafar Arion banka veita frekari upplýsingar í síma 444-8800 eða með tölvupósti á netfangið bilar@arionbanki.is.

Bílalan
Get ég farið með ökutæki úr landi ef ég er með bílalán? - Arion banki