Glatað kort / Frysta kort
Ef þú hefur glatað kredit- eða debetkorti er gott að byrja á að frysta kortið Arion appinu. Þegar þú hefur leitað af þér allan grun getur þú haft samband til að láta loka kortinu varanlega.
Finnist kortið ekki verður að tilkynna það glatað/stolið til þjónustuvers Arion banka í síma 444 7000. Utan afgreiðslutíma bankans skulu korthafar hafa samband við neyðarþjónustu kortafyrirtækjanna í síma 525 2000.
Fyrsta kort
Það er einfalt og fljótlegt að frysta kredit- og debetkort í appinu ef kort glatast.
Með því að frysta kortið lokar þú fyrir notkun kortsins í verslunum, hraðbönkum og á netinu:
Boðgreiðslur/áskriftir munu virka áfram
Kortagreiðslur með Apple Pay, Google Pay munu virka áfram
Snjallgreiðslur, svo sem greiðslur í gegnum Fitbit og Garmin tæki munu virka áfram
Hægt er að virkja kortið aftur í appinu.