Heimsóknargjald Priority Pass

Heimsóknargjald er skuldfært eftir hverja heimsókn í Priority Pass betri stofu. Ef þú vilt bjóða ferðafélaga með þér greiðir þú sama gjald fyrir gestinn.

Hvernig uppfæri ég upplýsingar um kortið sem er gjaldfært á?

  1. Ferð inn á vef Priority Pass.

  2. Velur LOG IN í hægra horninu efst og skráir þig inn með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir.

  3. Velur flipann MY DETAILS.

  4. Þar undir velur þú EDIT - Billing Details.

  5. Þar getur þú skráð og vistað nýjar kortaupplýsingar, svo sem kortnúmer eða gildistíma.

Hvað kostar að vera með Priority Pass?

Viðskiptavinir sem skrá sig í Priority Pass í gegnum vefsvæði Arion banka eru ekki rukkaðir fyrir árgjaldi Priority Pass.Ef Priority Pass er nýtt til að fara inn á betri stofur er rukkað gjald fyrir hverja heimsókn samkvæmt verðskrá á það kortanúmer sem er gefið upp við nýskráningu.

Upphæð heimsóknargjalds er birt í verðskrá Arion banka.

Kreditkort
Heimsóknargjald Priority Pass - Arion banki