Hvað er átt við með kvarðanum áhættuflokkun?
Stefnir hefur skipt verðbréfa- og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta í rekstri félagsins í sjö flokka byggt á samanteknum áhættuvísi.
Flokkur 1 ber minnstu sveiflurnar í ávöxtun en flokkur 7 mestu sveiflurnar. Flokkun sjóðs getur breyst ef sveiflur undirliggjandi fjármálagerninga taka breytingum.Mælikvarðinn byggir eingöngu á sögulegum sveiflum í ávöxtun.
Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð og tekur ekki mið af þeim ýmsu áhættum sem verðbréfa- og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta kunna að búa við í rekstri sínum. Þá kann flokkunin að breytast fyrirvaralaust.
Áhættumælikvarðinn er ekki almenn lýsing á þeirri áhættu sem fylgir fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða. Öllu heldur er um að ræða tölfræðilega, hlutbundna lýsingu á eignum þeirra fjölmörgu áhættuþátta sem geta verið til staðar við fjárfestingu í slíkum fjármálagerningum. Frekari umfjöllun um helstu áhættuþætti er að finna í útboðslýsingu hvers sjóðs.
Bent er á að ekki er tryggt að sögulegar sveiflur í ávöxtun sjóðs hafi forspárgildi um framtíðarsveiflur í ávöxtun hans.
Jafnframt er bent á að sjóðir í flokki 1 eru ekki áhættulaus fjárfesting og engin trygging er fyrir ávöxtun upphaflegrar fjárfestingar eða fullrar innheimtu hennar.