Hvað eru sjóðir?

Sjóðir taka við fjármunum frá mörgum fjárfestum. Sjóður er rekinn af rekstraraðila, eins og Stefni, og sjóðstjóri sjóðastýringarfyrirtækis stýrir fjármununum og ávaxtar þá með hliðsjón af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Hver og einn fjárfestir getur lagt mismikið til og eignast hlutdeild í sjóðnum sem samsvarar því sem hann lagði til. Þegar keypt er í sjóði eignast viðkomandi hlutdeildarskírteini í sjóðnum sem er ávísun á hlut í eignasafninu. Með því að kaupa í sjóði er mögulegt að ná fram ákveðinni áhættudreifingu þar sem sjóðurinn fjárfestir í mörgum mismunandi eignum.

Hvað er verðbréfasjóður?

Verðbréfasjóðir eru söfn skuldabréfa, hlutabréfa og ýmissa annarra auðseljanlegra verðbréfa. Íslenskir verðbréfasjóðir starfa samkvæmt lögum en markmið laganna er að gera verðbréfasjóði að öruggum kosti fyrir þá sem eiga í þeim hlutdeildarskírteini.

Fjárfestingarstefna sjóðanna er ákveðin fyrirfram og geta fjárfestar þannig kynnt sér heimildir sjóða áður en tekin er ákvörðun um að kaupa í sjóði. Fjárfestingarstefnu verðbréfasjóðs verður ekki breytt nema að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins sem hefur eftirlit með starfsemi viðkomandi rekstrarfélags og þar með sjóðanna.
Verðbréfasjóðir hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum enda kostir þeirra nokkrir umfram einstök bréf.

  • Áhættudreifing er meiri þar sem eignasöfn eru vel dreifð

  • Hægt að kaupa og selja hlutdeildarskírteini að vild án þess að bíða eftir ásættanlegu verði í einstök bréf

  • Heimildir til fjárfestinga á óskráðum mörkuðum eru takmarkaðar af ofangreindum lögum sem eykur seljanleika bréfanna og dregur úr vanskila- og tapsáhættu

  • Ekki þarf að hafa áhyggjur af gjalddögum eða endurfjárfestingu

  • Hægt að fjárfesta fyrir lægri fjárhæðir en í einstökum bréfum

Þrátt fyrir að verðbréfasjóðir fjárfesti í vel dreifðu eignasafni þá er hins vegar alltaf ákveðin áhætta fyrir hendi sem ekki er hægt að eyða en þó mögulegt að draga úr..

Sjóðir - Arion banki