Hvað get ég gert ef ég týni gjafakorti?
Til að tilkynna glatað gjafakort verður að gefa upp 8 stafa númer sem er að finna á bakhlið gjafakortsins. Ráðlagt er að skrá hjá sér 8 stafa númerið svo hægt sé að tilkynna gjafakort ef það glatast.
Ef um eldra gjafakort er að ræða sem ekki er með einkvæmt 8 stafa númer á bakhlið þarf að gefa upp fullt 16 stafa kortanúmer kortsins.
Það er gott ráð að skrá kortið strax í Apple Wallet eða Google Pay. Það er líka gott ráð að taka mynd af kortinu til þess að geta nálgast númerið síðar ef kortið týnist.
gjafakort