Hvernig fæ ég hæstu ávöxtun á fjárfestingum?
Almennt er talið að með áhættusamari fjárfestingum eins og hlutabréfum megi ná fram hærri langtímaávöxtun þó skammtímasveiflur geti vissulega orðið meiri. Mikilvægt er að hafa í huga til hve langs tíma á að fjárfesta og hvort þú þolir sveiflur í ávöxtun. Ef fjárfesta á til skemmri tíma er ekki ráðlagt að taka mikla áhættu og því ráðlegra að velja skuldabréfasjóð eða blandaðan sjóð.
Athugaðu að þú getur verið að taka meiri áhættu með því að fjárfesta í fjármálagerningum sem gefa af sér hærri ávöxtun.
Hvaða sjóður hentar mér best?

Hvernig ávaxtast eign mín í sjóði?
Þegar þú fjárfestir í sjóði eignast þú einingar í honum og það er verðbreyting þessara eininga sem ákvarðar ávöxtun þína frá einum tíma til annars. Gengi eininganna breytist á hverjum viðskiptadegi og ávöxtun verðbréfasjóða er þannig sveiflukennd. Gengið getur verið hærra eða lægra en sú fjárhæð sem þú upphaflega fjárfestir fyrir.Athugaðu að þegar þú átt viðskipti með sjóði liggur gengið ekki fyrir fyrr en í lok viðskiptadags þegar búið er að loka fyrir viðskipti. Viðskiptagengi er að jafnaði birt næsta virka dag. Þetta er gert til að gæta jafnræðis milli hlutdeildarskírteinishafa.