Hvernig get ég tryggt öryggi mitt sem best í Arion appinu?

Nauðsynlegt er að passa að setja inn nýjustu útgáfu af stýrikerfinu á símanum reglulega. Með nýjum útgáfum er oft verið að loka fyrir þekkta veikleika og því gott að halda símanum uppfærðum.

Reglulega koma nýjar útgáfur af appinu. Þá koma meldingar í símanum sem tilkynna það eins og með önnur forrit sem búið er að setja upp á símanum. Við mælum með að uppfæra appið alltaf þegar það er mögulegt þar sem sífellt er verið að reyna að vera skrefi á undan þeim sem eru að leita að veikleikum í öryggi.

PIN númerið ver upplýsingar á símanum og tryggir að ef hann fellur í rangar hendur mun það verða mun erfiðara fyrir viðkomandi að komast inn í upplýsingar í símanum.

Gæta að PIN númeri og leyninúmeri. Einn liður í örygginu er að vera með gott leyninúmer og PIN og nota sem dæmi ekki 1234. Einnig þarf að passa að óviðkomandi sjái ekki þegar PIN númer er slegið inn.

Appið
Öryggismál
Hvernig get ég tryggt öryggi mitt sem best í Arion appinu? - Arion banki