Hvernig skrái ég mig í áskrift í sjóði?

Hægt er að vera í áskrift að flestum sjóðum sem Stefnir rekur. Lágmarksupphæð í áskrift á flestum sjóðum er 5.000 kr. á mánuði. Þegar viðskiptavinur er í áskrift að sjóði sér söluaðili viðkomandi sjóðs um að skuldfæra af reikningi eða greiðslukorti um hver mánaðamót. Á upplýsingablöðum sjóðanna kemur fram hvort hægt sé að vera í áskrift að viðkomandi sjóði eða ekki. Veljir þú að vera í áskrift að sjóðum Stefnis, færð þú 50% afslátt af gengismun viðkomandi sjóðs og afgreiðslugjald er fellt niður.Þú getur gengið frá áskrift að sjóðum í Arion appinu og í netbanka Arion. Einnig er hægt að hafa samband við verðbréfaráðgjöf Arion í síma 444 7000 eða í gegnum verdbrefathjonusta@arionbanki.is.

  • Í appinu:

     

    Farið er inn í Arion appið, vörslusafnið valið á upphafsskjánum. Smellt er á „áskriftir“ og svo plúsinn uppi í hægra horninu. Þar er valið í hvaða sjóð áskriftin á að vera og fyrir hvaða upphæð.

  • Í netbankanum:

     

    Farið er inn í netbanka Arion og smellt á „verðbréf“ á valstikunni vinstra megin. Næsta skref er að smella á „sjóðir“ og svo „áskriftir“. Þá kemur valmöguleikinn skrá nýja áskrift þar sem upphæð og sjóður er valinn.

Er hægt að skrá börn í áskrift að sjóðum?

Hægt er að skrá áskrift fyrir börn með því að smella hér.

Sjóðir
Sparnaður
Verðbréf
Hvernig skrái ég mig í áskrift í sjóði? - Arion banki