Priority Pass
Priority Pass aðgangur
er nú kominn í app
Þú stofnar aðgang gegnum vefsíðu Arion banka hjá Priority Pass, nærð í appið og færð samstundis aðgang að betri stofum með því að sýna stafræna kortið í appinu. Einfalt og þægilegt.
Gildistími Priority Pass í appinu er 1 ár, og hann endurnýjast sjálfkrafa ef kortið á bak við aðildina er enn í gildi.
Í Priority Pass appinu getur þú:
Fengið aðgang að stafræna kortinu þínu í snjallsímanum eða spjaldtölvunni
Fundið tilboð og afslætti á fjölbreyttum matarupplifunum
Skoðað flugvallarkort
Notað fingrafar, snertiauðkenni eða Face ID til að fá hraðari aðgang að reikningnum þínum
Með Priority Pass appinu gerir þú gott ferðalag enn betra.
Svona stofnar þú aðgang
og sækir Priority Pass appið
Til að virkja aðganginn þinn þarftu að nýskrá þig með því að fylla út aðgangsform á vefsíðu Arion hjá Priority Pass. Umsóknarformið er á ensku og fer í gegnum samstarfsaðila okkar hjá Priority Pass.
Ferð inn á vefsíðu Arion hjá Priority Pass (https://www.prioritypass.com/arionbanki) og gefur upp fyrstu 8 tölustafina í kreditkortanúmerinu þínu.
Velur Ísland/Iceland sem svæði.
Setur inn persónuupplýsingar eins og netfang, síma og kreditkortanúmer sem heimsóknargjald verður skuldfært á.
Að skráningu lokinni sækir þú Priority Pass appið og skráir þig svo inn með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir við skráningu.
Stafræna kortið verður strax virkt.