Sækja um eða breyta yfirdráttarheimild

Yfirdráttarlán hentar vel þeim sem þurfa fremur lága upphæð í stuttan tíma. Lánið er afgreitt með skömmum fyrirvara og veitt til allt að 12 mánaða í senn. Lánið ber ekki eiginlegar afborganir svo þú getur hagað endurgreiðslu eftir þínum þörfum.

Möguleg upphæð lánsins er metin út frá tekjum og greiðslugetu hvers viðskiptavinar fyrir sig.

Yfirdráttarlán bjóðast fjárráða viðskiptavinum, 18 ára og eldri, uppfylli þeir kröfur bankans.

Kostir yfirdráttarláns

  • Ekkert lántöku-, stimpil- eða uppgreiðslugjald.

  • Þú greiðir bara vexti af þeirri upphæð sem þú nýtir hverju sinni.

  • Þú getur sótt um lánið í netbanka Arion banka. Þú færð skilaboð send í netbankann um leið og búið er að afgreiða umsóknina.

Svona sækir þú um eða breytir heimildinni þinni í Arion appinu

Til að breyta yfirdráttarheimild í Arion appinu, getur þú farið eftir þessum skrefum:

  1. Opnaðu Arion appið.

  2. Í stöðuskjánum skal velja þann reikning sem þú vilt breyta yfirdráttarheimild.

  3. Ýttu á hnappinn „Heimild“.

  4. Sláðu inn þá upphæð sem óskað er eftir.

  5. Ýttu á „Áfram“.

Þegar þú hefur lokið þessu ferli, verður ný yfirdráttarheimild komin á reikninginn.

Einnig er hægt að breyta yfirdráttarheimild í netbankanum.

Debetkort
Greiðslur
Oftast spurt um
Sækja um eða breyta yfirdráttarheimild - Arion banki