Verðtryggð íbúðalán
Verðtryggð lán bera lægri greiðslubyrði en óverðtryggð lán og eru með hægari eignamyndun. Verðbætur leggjast við höfuðstól og dreifast á lánstímann.
Verðtryggð lán eru tengd vísitölu neysluverðs og breytast því þegar verðlag á landinu hækkar eða lækkar. Í upphafi er greiðslubyrði verðtryggðra lána almennt lægri en óverðtryggðra en í verðbólgu leggjast verðbætur við höfuðstól verðtryggðra lána sem hækkar greiðslubyrði þeirra.
Verðtryggð íbúðalán geta verið með breytilegum vöxtum eða föstum vöxtum í 5 ár.
Breytilegir vextir hækka og lækka eftir því sem aðstæður á markaði breytast. Þannig geta breytilegir vextir hækkað og lækkað í takt við markaði og efnahagsástand.
Skilyrði og málsmeðferð
vaxtabreytinga fasteignalána Arion banka hf.