Okkur er mikilvægt að þekkja þarfir viðskiptavina okkar, því þannig getum við veitt faglega þjónustu sem leggur grunn að velgengni þeirra.
Ef þú ert í fjölbreyttum viðskiptum við okkur og ert með samtals 40 milljónir í verðbréfum, innlánum eða í viðbótarlífeyrissparnaði Arion eða Frjálsa, ert þú á réttum stað.
Ef þú ert með yfir 40 milljónir í eignastýringu getur þú nýtt þér næsta þrep - Premía einkabankaþjónusta. Þar færð þú að auki fjárfestingarráðgjöf og eigin viðskiptastjóra.
Efsta stig þjónustunnar - Premía fjárstýring - stendur þér svo til boða ef þú ert með yfir milljarð í eignastýringu.
Við bjóðum betur
Við bjóðum ekki einungis upp á framúrskarandi fjármálaþjónustu og aðgengi að hópi okkar færustu sérfræðinga.
Þú færð einnig betri kjör og getur nýtt þér vörur sem aðeins standa viðskiptavinum Premíu til boða.
Þú átt einnig kost á að fara á efsta stig í Arion fríðindum þar sem þú færð m.a. 7% endurgreiðslu af tryggingum þínum hjá Verði, sem og hærri endurgreiðslu af árgjaldi kreditkorts. Þú skráir þig í Arion fríðindi í appinu.
Öflug þjónusta
Aðgengi að hópi sérfræðinga
Ráðgjöf um lífeyrismál
Einstaklingsmiðuð ráðgjöf um sparnaðarleiðir
Maki fær einnig Premía kjör og þjónustu uppfylli hann þriðja stig Fríðindakerfis Arion***
Reglulegt fréttabréf og tilboð
Betri kjör
Sparnaðarreikningar á betri kjörum*
Debetkortareikningar á betri kjörum
Sérkjör á tryggingum Varðar ásamt sérstakri golftryggingu
Afsláttur af viðskiptaþóknun í hlutabréfaviðskiptum**
Einstakt aðgengi
Aðgangur að fleiri sjóðum
Okkar besta kreditkort
Aðgangur að bankahólfi
Aukin markaðstækifæri
Boð á sérstaka viðburði
Forgangur að miðakaupum hjá Senu Live
*0,20% aukavextir á Vöxtur 30 dagar, Vöxtur óbundinn og Vöxtur verðtryggður.
**Í appi og netbanka.
*** Þriðja stig Fríðindakerfis - Vera með yfir 10 milljónir í fjárhagsstöðu (innlán, viðbótarlífeyrissparnaður og/eða vörslusafn) ásamt því að vera með þrjár virkar þjónustur.
Þú ert í góðum höndum
Í Premíu hefur þú aðgang að hópi sérfræðinga sem sérhæfa sig í bankaþjónustu, lífeyrismálum og tryggingum.
Viðskiptastjórar okkar hafa auk þess góða innsýn í fjármálamarkaðinn og tengsl við færustu sérfræðinga á sínu sviði.
Þú getur alltaf leitað til okkar og verið viss um að við höfum hag þinn að leiðarljósi.
Okkar besta kreditkort
Sem viðskiptavinur Premíu hefur þú aðgang að sérhönnuðum greiðslukortum.
Kreditkortinu fylgja okkar bestu ferðatryggingar, golftrygging og fjöldi annarra fríðinda, eins og aðgangur að Saga Lounge og frí heimsókn í Betri stofu World Class mánaðarlega. Auk þess safnar þú vildarpunktum Icelandair af allri verslun, innlendri sem erlendri.

Meiri fríðindi með Premíu kreditkorti
Fleiri vildarpunktar
5.000 vildarpunktar og 6.000 fríðindastig Icelandair árlega við greiðslu árgjalds, þú safnar svo 12 punktum fyrir hverjar 1.000 kr. af allri verslun – innanlands sem utan.
Árleg punktagjöf
Þú færð 50.000 Vildarpunkta í gjöf að uppfylltum skilyrðum.
Betri ferðatryggingar
Kortinu fylgja okkar allra bestu ferðatryggingar og víðtækari bílaleigutryggingar. Frábær kjör fyrir fólk sem ferðast mikið.
Betri stofur flugvalla
Ókeypis aðgangur að Saga Lounge í Leifsstöð þegar þú flýgur með Icelandair. Athugaðu að þú getur boðið gesti með þér gegn gjaldi.
Flýtiinnritun
Flýtiinnritun (Priority check-in) í Keflavík í flug Icelandair fyrir handhafa kortsins.
Golftrygging
Kortinu fylgir Premía golftrygging þar sem búnaðurinn er tryggður ásamt óhappatryggingu o.fl. Ef þú ferð holu í höggi getur þú fengið greiðslu sem hugsuð er til þess að mæta þeim kostnaði sem hlýst af því að bjóða meðspilurum upp á veitingar að hring loknum.
Heimsókn í Betri stofuna
Gegn framvísun kortsins færð þú eina heimsókn á mánuði í Betri stofu World Class og getur einnig boðið með þér gesti.
Reykjavík Edition
Þú færð 10% afslátt af veitingum hjá Reykjavík Edition. Afslátturinn gildir á The ROOF, Lobby bar, Tides og Tides Cafe. Aðgangur að Tölt bar sem eingöngu er opinn þeim sem eru með meðlimakort.
Viking Heliskiing
Þú færð 15% afslátt af bæði pakka- og dagsferðum á þyrluskíðaferðum auk þess að vera sótt/ur og skilað á Akureyrarflugvöll án endurgjalds.
Hvernig getum við aðstoðað þig?
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að senda okkur póst á premia@arionbanki.is.
Ef þú vilt bóka fund með viðskiptastjóra fyllir þú út formið, við höfum svo samband um hæl og finnum tíma sem hentar þér.
Sérfræðingar Premíu

Magnús Már Leifsson, forstöðumaður
magnus.mar.leifsson@arionbanki.is

Björg Kristinsdóttir
bjorg.kristinsdottir@arionbanki.is

Daði Hendricusson
dadih@arionbanki.is

Dýri Kristjánsson
dyri.kristjansson@arionbanki.is

Edda Björk Sigurðardóttir
eddabs@arionbanki.is

Eiríkur Önundarson
eirikur.onundarson@arionbanki.is

Gunnar Andrésson
gunnar.andresson@arionbanki.is

Helena Kristín Brynjólfsdóttir
helena.brynjolfs@arionbanki.is

Pétur Ágústsson
petur.agustsson@arionbanki.is

Sigurlaug Bára Jónasdóttir
sigurlaug.bara.jonasdottir@arionbanki.is

Sveinn Gíslason
sveinn.gislason@arionbanki.is

Sverrir Guðmundsson
sverrir.gudmundsson@arionbanki.is

Thelma Harðardóttir
thelma.hardardottir@arionbanki.is

Þorsteinn Freyr Þorsteinsson
thorsteinn@arionbanki.is

.png)

.png)



