Þú ert á góðum stað
Premía fjárstýring er heildarlausn sem byggir á fagmennsku, trúnaði og persónulegri nálgun.
Premía fjárstýring er heildarlausn sem byggir á fagmennsku, trúnaði og persónulegri nálgun.

Premía fjárstýring er sérsniðin fjármála- og fjárfestingaþjónusta með það að markmiði að auka og varðveita eignir þínar.
Við höfum áratuga reynslu af því að styðja við einstaklinga og fjölskyldur með flóknar fjárhagslegar þarfir.
Við hvetjum þig því til að hafa samband með því að senda línu á netfangið premia@arionbanki.is og svo við getum veitt þér innsýn í allt það sem við höfum upp á að bjóða.
Við aðstoðum þig við að móta langtímaáætlun í takt við þarfir þínar og fjölskyldunnar.
Einnig sjáum við um að þróa fjárfestingarstefnu sem tekur mið af viðhorfum þínum til ávöxtunar og áhættu.
✓ Áhersla á varðveislu eignasafns
✓ Greining vaxtarmöguleika
✓ Fjárfestingaáætlanir
✓ Skattamál
✓ Fjárhagsleg skipulagning
✓ Lífeyrismál
✓ Erfðamál
✓ Lögfræðiráðgjöf
✓ Fyrirtækjaráðgjöf
✓ Regluleg fréttabréf
✓ Boð á sérstaka viðburði
✓ Forgangur að miðakaupum hjá Senu Live
Þú færð tvo viðskiptastjóra sem sjá um öll þín mál – saman vinna þeir svo með teymi sérfræðinga í takt við þínar þarfir.
Persónuvernd, trúnaður og örugg stjórnun á fjármagni eru ávallt í forgangi, en viðskiptastjórarnir þínir eru þeir einu sem hafa aðgang að upplýsingunum þínum.
Við horfum heildstætt á hlutina – þess vegna fær fjölskylda þín einnig aðgang að þjónustu Premíu.
Sem viðskiptavinur Premíu hefur þú aðgang að sérhönnuðum greiðslukortum.
Kreditkortinu fylgja okkar bestu ferðatryggingar, golftrygging og fjöldi annarra fríðinda, eins og aðgangur að Saga Lounge og frí heimsókn í Betri stofu World Class mánaðarlega.
Auk þess safnar þú vildarpunktum Icelandair af allri verslun, innlendri sem erlendri.
Í ofanálag færð þú sérhannað Premíu debetkort.
Með nýstofnuðu korti fylgja 5.000 Vildarpunktar. Þú safnar síðan 12 Vildarpunktum fyrir hverjar 1.000 kr. af allri verslun, bæði innanlands og utan.
Þú færð 50.000 Vildarpunkta í gjöf frá okkur ef ársvelta er yfir 2.500.000 kr. í erlendri mynt.
Kortinu fylgja okkar allra bestu ferðatryggingar og víðtækari bílaleigutryggingar. Frábær kjör fyrir fólk sem ferðast mikið.
Ef þú ferð holu í höggi áttu rétt á greiðslu sem hugsuð er til þess að mæta þeim kostnaði sem hlýst af því að bjóða meðspilurum upp á veitingar að hring loknum.
Ókeypis aðgangur að Saga Lounge á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair. Korthafar geta boðið einum gesti með sér, þó gegn gjaldi, alla daga vikunnar nema á fimmtudögum.
Þú getur nýtt þér flýtiinnritun (Priority check-in) á Keflavíkurflugvelli þegar þú flýgur með Icelandair.
Með því að framvísa kortinu býðst þér að heimsækja Betri stofu World Class 1x í mánuði ásamt einum gesti.
Þú færð 10% afslátt af veitingum hjá Reykjavík Edition. Afslátturinn gildir á The ROOF, Lobby Bar, Tides og Tides Cafe. Aðgangur að Tölt bar sem eingöngu er opinn þeim sem eru með meðlimakort.
Bagbee sækir farangurinn heim til þín, flytur til Keflavíkurflugvallar og innritar. Sýna þarf Premíu kreditkortið við afhendingu og nafn handhafa kortsins þarf að vera á pöntuninni. Kóðinn ArionPremia virkjar afsláttinn. Virkar þegar flogið er með Icelandair eða Neos.
Þú færð 15% afslátt af bæði pakka- og dagsferðum á þyrluskíðaferðum. Að auki sér Viking Heliskiing um að sækja þig og skila á Akureyrarflugvöll, án endurgjalds.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að senda okkur póst á premia@arionbanki.is.

















