Þegar verslað er í erlendri mynt er upphæðin reiknuð yfir í íslenskar krónur. Á vef bankans er birt gengi helstu gjaldmiðla sem hægt er að nýta til að reikna upphæðir í erlendri mynt í íslenskum krónum.
Þegar verslað er með korti er mismunandi gengi notað eftir því hvort um er að ræða debetkort eða kreditkort. Það er ekki hægt að miða við almennt gengi eða seðlagengi þegar um kortaviðskipti er að ræða. Almennt gengi er notað t.d. þegar verið er að millifæra á milli landa en seðlagengi við kaup og sölu á seðlum
Korthafa er stundum gefin kostur á að velja hvort að hann greiðir í íslenskum krónum eða erlendri mynt þegar verslað er erlendis. Mikilvægt er að bera saman kjörin áður en ákvörðun er tekin um hvaða mynt er valin, en oftast er hagkvæmara að versla í erlendri mynt . Þegar valið er að greiða erlendis í íslenskum krónum er það söluaðilinn sem ákveður gengið og hefur bankinn enga aðkomu.