Priority Pass veitir aðgang að yfir 1900 betri stofum á flugvöllum í fleiri en 600 borgum víða um heim, óháð flugfélagi og farrými. Þú getur notið veitinga, lesið blöð og færð aðgang að þráðlausu neti.
Heimsóknargjald er skuldfært eftir hverja heimsókn í Priority Pass betri stofu. Ef þú vilt bjóða ferðafélaga með þér greiðir þú sama gjald fyrir gestinn. Upphæð heimsóknargjalds er birt í verðskrá Arion banka.


Í Priority Pass appinu getur þú t.d.:
Fundið tilboð og afslætti á fjölbreyttum matarupplifunum
Skoðað flugvallarkort
Til að virkja aðganginn þinn þarftu að nýskrá þig, byrjaðu á því að fara inn á vefsvæði Arion hjá Priority Pass og klára innskráningarferlið áður en þú sækir appið.
Nánari leiðbeiningar er að finna hér neðar á síðunni.
Við mælum með að þú sækir Priority pass+ appið, þar sem það er ný útgáfa af appinu sem kemur til með að taka við af Priorty pass TM appinu.
Ef þú ert að skrá þig í Priority pass aðild í fyrsta sinn þá byrjar þú á því að stofna aðgang á vefsíðu Arion hjá Prioritypass, sækir svo Priority pass+ appið og skráir þig inn með notendanafninu og lykilorðinu sem þú valdir þegar þú stofnaðir aðganginn.
Ef þú ert nú þegar með Priority passTM appið, þá hleður þú einfaldlega niður Priority pass+ appinu og skráir þig inn með sama notendanafni og lykilorði og þú varst með á Priority passTM appinu.
Til að virkja aðganginn þinn þarftu að nýskrá þig með því að fylla út aðgangsform á vefsíðu Arion hjá Priority Pass. Umsóknarformið er á ensku og fer í gegnum samstarfsaðila okkar hjá Priority Pass.
Byrjaðu á því að fara inn á vefsvæði Arion hjá Priority Pass og klára innskráningarferlið.
Ferð inn á vefsíðu Arion hjá Priority Pass
Slærð inn fullt kortnúmer, smellir á Submit og smellir á Join Now
Gefur upp persónuupplýsingar (nafn, netfang, símanúmer o.s.frv.)
Býrð til aðgang (notandanafn, lykilorð, öryggisspurning)
Gefur upp kortaupplýsingar og tengdar upplýsingar svo Priority Pass geti rukkað heimsóknargjald þegar það á við
Að skráningu lokinni sækir þú Priority Pass appið, skráir þig svo inn með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir við skráningu og þá virkjast stafræna kortið
Ferð inn á vef Priority Pass
Velur LOG IN í hægra horninu efst og skráir þig inn með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir.
Velur flipann MY DETAILS
Þar undir velur þú EDIT - Billing Details
Þar getur þú skráð og vistað upplýsingar um nýtt kort.
Platinum
Premium World
Premía kreditkort
Gull viðskiptakort
Platinum viðskiptakort
Platinum Business Travel
Viðskiptavinir sem skrá sig í gegnum vefsvæði Arion eru ekki rukkaðir um árgjald.
Aðgangurinn gildir í eitt ár í senn.
Þú byrjar á því að fara í nýskráninguna á vefsíðunni https://www.prioritypass.com/arionbanki. Þar þarft þú að velja þér nýtt notandanafn því ekki er ekki hægt að nota það notandanafn sem þú ert með nú þegar í Priority Pass appinu.
Þegar innskráningarferlinu er lokið opnar þú Priority Pass appið með nýja notandanafninu sem þú valdir og tenging við Arion banka kort þitt er orðin virk.
Ferð inn á vef Priority Pass
Velur LOG IN í hægra horninu efst og skráir þig inn með notandanafninu og lykilorðinu sem þú valdir
Velur flipann MY DETAIL
Þar undir velur þú EDIT - Billing Details
Þar getur þú skráð og vistað nýjar kortaupplýsingar, svo sem kortnúmer eða gildistíma
Ef viðskiptavinir fara inn á hefðbundna síðu Priority Pass og borga sjálfir fulla aðild í stað þess að fara í gegnum vefsíðu Arion hjá Priority Pass þá þarf viðskiptavinur að segja upp aðildinni og óska eftir endurgreiðslu með því að hafa samband við þjónustuver Priority Pass í gegnum síma +44 20 8680 1338 eða í gegnum vefgátt.
Þegar búið er að segja upp ranglega stofnuðu áskriftinni þá þarf að stofna nýjan aðgang í gegnum vefsíðuna https://www.prioritypass.com/arionbanki og passa að stofna aðganginn á nýju notandanafni og lykilorði. Ekki er hægt að halda sama notandanafni og lykilorði og var á aðganginum sem var rukkað fyrir.
Að skráningu lokinni er hægt að sækja Priority appið og skrá sig inn með notandanafninu og lykilorðinu sem valið var við skráningu í gegnum vefsíðu Arion hjá Priority Pass.
Nei, Priority Pass gildir ekki í Saga Lounge í Keflavíkurflugvelli. Handhafar Premium World, Premia kreditkorts og Platinum Business Travel korts geta nýtt Saga Lounge á Keflavíkurflugvelli þegar flogið er með áætlunarflugi Icelandair.
Athugaðu að neðangreindar ástæður gætu átt við.
Ef QR kóðinn þinn er ekki í Priority Pass appinu þá skaltu kanna hvort þú hafir farið rétt að þegar þú nýskráðir þig í gegnum vefsíðu Arion banka hjá Priority Pass. Röng nýskráning gæti verið ástæðan fyrir því að enginn QR kóði sé í appinu.
Ef QR kóði er í appinu en þú færð synjun þá gæti það verið af því að kreditkortaheimildin er fullnýtt. Þú getur breytt heimild kortsins í Arion banka appinu.
Í einhverjum tilfellum getur verið fullt á betri stofum og því ekki hægt að veita fleirum aðgang. Þá getur það komið fyrir að viðskiptavinum sé hafnað um inngöngu.
Ef starfsmaður á Betri stofu hafnar aðgangi að betri stofu án augljósrar ástæðu þá biðjum við þig um að senda okkur helstu upplýsingar um atvikið og við komum ábendingum áleiðis til Priority Pass.
Athugaðu hvort það kreditkort sem veitti aðgang að betri stofu hafa verið lokað. Aðgangur að Priority Pass fellur niður við það að korti er lokað.
Þú ferð inn á vefsíðuna https://www.prioritypass.com/forgot-details og velur „I don´t remember my password“ og í þann reit skráir þú notandanafnið þitt.
Þú ferð inn á vefsíðuna https://www.prioritypass.com/forgot-details og velur „I don´t remember my username“ og í þann reit skráir þú netfangið sem þú gafst upp þegar þú nýskráðir þig.