Þú getur keypt í erlendum vísitölusjóðum
Þú getur keypt í erlendum vísitölusjóðum í Arion appinu og netbanka

Þú getur keypt í erlendum vísitölusjóðum í Arion appinu og netbanka

Vísitölusjóður er tegund hlutabréfasjóðs sem hefur það markmið að fylgja þróun ákveðinnar hlutabréfavísitölu.
Í stað þess að reyna að velja ákveðin hlutabréf kaupir sjóðurinn einfaldlega öll þau hlutabréf sem eru í vísitölunni og í sambærilegum hlutföllum. Þetta þýðir að þegar verð á fyrirtækjunum í vísitölunni hækkar eða lækkar þá fylgir verðmæti sjóðsins þeirri þróun.
Vísitölusjóður dreifir áhættunni með því að kaupa í fjölda fyrirtækja í takt við vísitöluna. Það þýðir að þú ert ekki að treysta á afkomu eins eða fárra fyrirtækja sem geta sveiflast töluvert á skömmum tíma heldur fylgir þú þróun markaðarins í heild.
Vísitölusjóðir eru hagkvæm leið til að fjárfesta þar sem þeir fylgja ákveðinni vísitölu og er reksturinn ódýrari en í mörgum öðrum sjóðum sem eru að reyna að finna bestu félögin.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat.

Sjóðurinn fylgir þróun S&P 500 eins og mögulegt er. Vísitalan samanstendur af 500 stærstu skráðu fyrirtækjum í Bandaríkjunum.

Sjóðurinn fylgir þróun MSCI Europe Screened Choice Index vísitölunnar eins og hægt er. Vísitalan samanstendur af stórum og meðalstórum fyrirtækjum í þróuðum ríkjum Evrópu. Eingöngu er fjárfest í félögum sem standast kröfur um ábyrgan rekstur.
Sjóðurinn fylgir þróun MSCI World Screened Choice Index vísitölunnar eins og hægt er. Vísitalan mælir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja með starfsemi í 23 þróuðum löndum um allan heim. Eingöngu er fjárfest í félögum sem standast kröfur um ábyrgan rekstur.
Sjóðurinn fylgir þróun nýmarkaðsvísitölunnar MSCI Emerging Markets Screened Choice Index eins og hægt er. Vísitalan mælir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja með starfsemi í 24 löndum á nýmörkuðum um allan heim. Eingöngu er fjárfest í félögum sem standast kröfur um ábyrgan rekstur.
