Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð.
Uppruni gagna: Stefnir hf.
Fjárfestingarstefna sjóðsins er að fylgja afkomu vísitölunnar MSCI Emerging Markets Screened Choice Index eins nákvæmlega og unnt er, jafnframt því sem leitast er við að lágmarka eftir fremsta megni frávik milli árangurs sjóðsins og árangurs vísitölunnar. Sjóðurinn mun leitast við að endurspegla vísitöluna með því að eiga öll verðbréf sem í henni eru í svipuðu hlutfalli og vægi þeirra í vísitölunni.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að áhætta af fjárfestingu eykst ef hún er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna sveiflna í ávöxtun. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Sérhver fjárfestir er hvattur til að framkvæma eigin athuganir og greiningar, m.a. kynna sér viðeigandi upplýsingaskjöl og leggja sjálfstætt mat á slík skjöl áður en ákvörðun er tekin um tiltekna fjárfestingu. Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu Stefnis þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni og því mikilvægt fyrir fjárfesta að kynna sér slíkt.
Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem Stefnir telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Stefnir ber enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.
Sjá nánari fyrirvara hér: Almennur fyrirvari
Sjóðurinn fylgir afkomu MSCI EM Screened Choice Index vísitölunnar eins náið og mögulegt er, hvort sem vísitalan hækkar eða lækkar. Hann leitast eftir því að endurspegla vísitöluna með því að eiga öll verðbréf sem í henni eru í svipuðu hlutfalli og vægi og í vísitölunni.
MSCI EM Screened Choice Index byggir á nýmarkaðsvísitölunni MSCI EM Index, sem mælir gengi stórra og meðalstórra fyrirtækja í 24 ríkjum á nýmörkuðum um allan heim. Vísitalan útilokar úr mælingunni þau fyrirtæki sem standast ekki kröfur um UFS(umhverfi, félagslega þætti og stjórnarhætti) skilyrði.
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja fjárfesta í ábyrgum fyrirtækjum á heimsvísu og þola þó nokkrar sveiflur í ávöxtun. Ráðlagður lágmarkstími fjárfestingar er fimm ár.