31.05.2013

Nýtt kredit­kort með ferða­tengd­um fríðind­um í sam­starfi Arion banka við Icelanda­ir

Arion banki og Icelandair hafa undirritað samstarfssamning um útgáfu á MasterCard World Elite kortum sem veita handhöfum víðtæk ferðatengd fríðindi.

MasterCard World Elite kortið veitir handhöfum fleiri Vildarpunkta en nokkuð annað kreditkort auk þess sem punktar safnast af notkun bæði innanlands og erlendis. Korthafar fá aðgang að Saga Lounge og flýtiinnritun í Leifsstöð auk þess sem þeir njóta margvíslegra annarra fríðinda.

Korthafar MasterCard World Elite safna 15 punktum fyrir hverjar 1.000 krónur af allri innlendri og erlendri veltu og fá þar að auki 10.000 Vildarpunkta strax við stofnun kortsins og 5.000 Vildarpunkta við hverja endurnýjun.

MasterCard World Elite kortinu fylgja einnig kortastig sem leggjast inn á Saga Club reikning korthafa. Fjöldi kortastiga ræður því hvort korthafar fá Saga Gold eða Saga Silver kort hjá Icelandair og eru þeim mikilvæg sem fljúga mikið með Icelandair. Strax við stofnun MasterCard World Elite kortsins fær korthafi 8.000 kortastig inn á sinn Saga Club reikning og svo 6.000 kortastig á hverju ári við endurnýjun kortsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira