12.01.2015

„P­innið á minnið“ frá og með 19. janú­ar

Frá og með mánudeginum 19. janúar nk. verður undanþága til staðfestingar kortafærslna án pinn númers afnumin. Frá og með þeim tíma verður ekki hægt að staðfesta greiðslur með greiðslukortum með því að ýta tvisvar á græna hnappinn eins og verið hefur. Þessi breyting á við um greiðslukort allra banka, þar með talin bæði debet-og kreditkort frá Arion banka.

Notkun pinn númers er mikilvægt öryggisatriði og dregur verulega úr líkum á misnotkun stolinna eða glataðra greiðslukorta. Því er gerð krafa um notkun þess í öllum tilfellum.

Gera má ráð fyrir að einhver hópur korthafa komi til með að þurfa á undanþágu frá þessari kröfu að halda, m.a. sökum fötlunar eða af heilsufarsástæðum, og eru þeir hvattir til að hafa samband við bankann.

Pinn númer debet- og kreditkorta frá Arion banka eru aðgengileg í netbankanum og Arion appinu. Nánari upplýsingar um pinn númer og „Pinnið á minnið“ má finna hér hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira