Á þitt fyrirtæki kost á betri kjörum?
Arion banki, í samstarfi við Evrópska fjárfestingarsjóðinn, EIF, býður fyrirtækjum sem uppfylla ákveðin skilyrði lán á hagkvæmari kjörum, eða gegn lægri veðtryggingu.

Arion banki, í samstarfi við Evrópska fjárfestingarsjóðinn, EIF, býður fyrirtækjum sem uppfylla ákveðin skilyrði lán á hagkvæmari kjörum, eða gegn lægri veðtryggingu.

Lánunum er ætlað að styðja við ung og vaxandi fyrirtæki eða þróun nýrrar tækni og ferla hjá rótgrónum fyrirtækjum ásamt fjárfestingum í orkuskiptum, sjálfbærni og hringrásarhagkerfi. Um ný verkefni þarf að vera að ræða og því er ekki hægt að endurfjármagna með EIF láni.
Til dæmis fjárfestingar í lífrænum landbúnaði, hringrásarhagkerfinu eða umhverfisvænum framleiðsluaðferðum – sem og grænar fjárfestingar í bílum, skipum, tækjum og tólum.
Til að mynda lánveitingar til verkefna vegna innleiðingar nýrra kerfa eða tækni, rannsókna og þróunar. Undir þennan hatt falla einnig fyrirtæki í örum vexti og margt fleira.
Hér má nefna fjárfestingar í kvikmyndum, þáttagerð, bókaútgáfu eða starfsemi safna, ásamt öðrum verkefnum sem hefja upp og viðhalda menningu á einhvern hátt.

Hagstæðari fjármögnun á vistvænum fyrirtækjabílum
Bílalán EIF er ætlað fyrirtækjum* sem óska eftir láni á rafbíl, metanbíl eða atvinnutæki sem nota annan orkugjafa en jarðefnaeldsneyti.
Hagstæðari kjör
9,60% vextir
85% veðhlutfall
1,5% lántökugjald
5 ára lánstími
Lánin eru veitt með ábyrgð Evrópska fjárfestingasjóðsins (EIF) með því markmiði að hraða orkuskiptum í bílaflota fyrirtækja.
“Það er einstaklega ánægjulegt að endurvekja samstarf okkar við Evrópska fjárfestingasjóðinn. Samstarf okkar fyrir um átta árum var grunnurinn að stuðningi Arion við fjölmörg nýsköpunarverkefni t.a.m. á sviði fiskeldis, gagnavera, umhverfisvænna orkugjafa og húðvara.
Nú nær samstarfið til enn fleiri sviða með áherslu á nýsköpun og stafvæðingu samfélagsins, menningu og skapandi greinar og sjálfbærni- og umhverfismál. Samstarf okkar og fjárfestingarsjóðsins er mikilvægt og auðveldar okkur að lána til verkefna á þessum sviðum.
Það gerir okkur kleift að fjármagna verkefni sem eru komin skemmra á veg en ella og á hagstæðari kjörum, uppfylli þau skilyrði samningsins.”
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka

Við hvetjum þig til að kanna hvort verkefnið þitt falli undir ábyrgð EIF með því að senda póst á fyrirtaeki@arionbanki.is.