fjölskylda - barn

Barna­sparn­að­ur

Það er aldrei of snemmt að byrja að spara og eins er gott að byrja að kynna börn fyrir sparnaði á yngri árum. Fyrstu skrefin í að kenna sparnað eru oftast tekin með því að fylla sparibauk og koma með hann í bankann og fá jafnvel glaðning með heim að launum.

Það getur þó verið erfitt fyrir börn að skilja hvert peningurinn fer og hvers vegna það er betra að geyma hann í bankanum en í bauknum inni í herbergi.

Fyrir foreldra er gott að huga að því snemma að stofna sparnaðarreikning fyrir börn en það er aldrei of snemmt að byrja að leggja fyrir og spara. Framtíðarreikningur Arion banka er sérstaklega hannaður fyrir sparnað frá fyrstu tíð og er innistæða hans bundin til 18 ára aldurs.

Þegar börnin verða eldri er mikilvægt að kenna þeim góð gildi þegar kemur að fjármálum og auka fjármálalæsi þeirra með því að veita þeim innsýn inn í sinn eigin sparnað og hvernig hann getur ávaxtast. Þannig er hægt að sýna þeim hvernig upphæðin hækkar þegar baukurinn er tæmdur og þannig vekja áhuga þeirra á því að spara til framtíðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira