Helga og Hjalti til liðs við fyrir­tækja­ráð­gjöf Arion banka

Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa gengið til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Helga Lára hefur starfað á fjármálamarkaði í tæplega 15 ár, nú síðast hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna þar sem hún sinnti verkefnum sem tengjast eignastýringu og fjárfestingum hér á landi sem og erlendis. Áður vann Helga Lára hjá Arion banka, Kaupþingi og lögmannstofunni Olswang í London. Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með áherslu á viðskipta- og skattarétt.

Hjalti Már hefur starfað hjá Arion banka frá árinu 2010, nú síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði þar sem hann hefur sinnti verkefnum á sviði laxeldis, sjávarútvegs og fasteigna. Áður gegndi Hjalti meðal annars starfi lánastjóra á fyrirtækjasviði og sérfræðings á viðskiptabanksviði. Hjalti Már er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og með meistaragráðu í fjármálahagfræði frá IESE.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira