
Hvernig get ég verið grænni í fjármálum?
Loftslagsbreytingar, sjálfbærni og kolefnisfótspor
Loftslagsbreytingar, sjálfbærni og kolefnisfótspor eru hugtök sem flestir þekkja og margir reyna að hafa jákvæð áhrif með því að flokka rusl, endurvinna og nýta umhverfisvæna orkugjafa. Við hugsum þó kannski ekki alltaf um fjármálin okkar þegar kemur að því að stuðla að sjálfbærni og grænni framtíð. Það er þó ýmislegt sem við getum gert til að vera grænni í fjármálum, þar sem stýring fjármagns getur haft bein áhrif á þróun loftslagsmála.
Við viljum að verkefnin sem við styðjum viðskiptavini okkar í hafi jákvæð áhrif á bæði umhverfi og samfélag. Við höfum sett okkur metnaðarfulla umhverfis- og loftslagsstefnu sem miðar að því að beina sjónum að verkefnum sem styðja sjálfbæra þróun og græna innviðauppbyggingu.
Grænn sparnaður
Grænn vöxtur er sparnaðarreikningur fyrir einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og því laus til úttektar hvenær sem er. Fjármunum sem safnast inn á Grænan vöxt er ráðstafað til vistvænna verkefna í samræmi við Græna fjármálaumgjörð okkar.
Grænir bílar og umhverfisvottað húsnæði
Við bjóðum upp á fjölda útlána sem falla undir skilgreiningu grænna lána. Slík lán bera að jafnaði hagstæðari kjör og styðja verkefni sem draga úr losun, stuðla að sjálfbærni eða nýta endurnýjanlega orkugjafa.
Við leggjum áherslu á vistvæna bíla með því að bjóða engin lántökugjöld við fjármögnun bíla sem eingöngu ganga fyrir rafmagni eða endurnýjanlegum orkugjöfum. Auk þess veitum við 50% afslátt af lántökugjöldum við fjármögnun bíla sem nota að hluta endurnýjanlega orkugjafa og eru með minni útblástur en 99 g/km í vegið CO₂ gildi.
Þá veitum við 100% afslátt af lántökugjöldum á íbúðaláni við kaup á umhverfisvottuðu íbúðarhúsnæði. Vottun þarf að liggja fyrir frá einum af eftirtöldum aðilum: Svansvottun, BREEAM – Very Good eða LEED Gold.
Græn fyrirtækjalán
Fyrirtækjalán sem falla undir græna skilgreiningu bera að jafnaði lægri fjármögnunarkostnað. Gerðar eru ríkari kröfur um frammistöðu og upplýsingaskyldu um ófjárhagslega mælikvarða. Lánin geta meðal annars tengst grænum fasteignakaupum, framkvæmdafjármögnun, endurbótum fasteigna, sjálfbærum veiðum, orkunýtingu, mengunarvörnum, endurnýjanlegri orku og sjálfbærum landbúnaði.
Taktu þátt í grænni framtíð
Með því að velja grænar fjármálavörur tekur þú virkan þátt í að stuðla að sjálfbærari framtíð. Hvort sem þú ert að spara, fjárfesta eða taka lán, þá getur þú haft áhrif með því að velja vörur sem styðja við umhverfisvæn verkefni.


