Staðfesting kortagreiðslna

Til að tryggja öryggi þegar verslað er á netinu þá bjóða margar netverslanir upp á að viðskiptavinir staðfesti greiðslu áður en gengið er frá kaupum.

Þegar þú verslar á netinu og þörf er á staðfestingu greiðslu færðu tilkynningu frá Arion appinu sem leiðir þig á staðfestingarskjá greiðslunnar. Þar má sjá helstu upplýsingar um greiðsluna og hægt er að staðfesta hana eða hætta við.Ef þú óskar eftir að staðfesta kortagreiðslu í netbanka í stað þess að nota Arion appið þá þarf að virkja þá staðfestingarleið með því að hafa samband við þjónustuver Arion banka. Staðfestingarskjárinn er virkur í 5 mínútur, að þeim tíma liðnum þá þarftu að framkvæma greiðslufyrirmæli aftur í netverslun til þess að framkalla nýjan staðfestingarskjá.

Mikilvægt er að ganga úr skugga um að upphæð, gjaldmiðill og nafn söluaðila á staðfestingarskjá passi við kaupin, þar sem greiðslur sem þú staðfestir eru á þína ábyrgð.Við höfum tekið saman nokkur atriði sem við hvetjum viðskiptavini okkar að hafa í huga til að auka öryggi og tryggja að kaup fari vel fram. Þessar upplýsingar má finna hér.

Appið
Debetkort
Greiðslur
Kreditkort
Staðfesting kortagreiðslna - Arion banki