Vöxtur – 30 dagar
Vöxtur – 30 dagar er óverðtryggður sparnaðarreikningur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þú getur lagt inn á reikninginn hvenær sem er og vextir ráðast af heildarinnistæðu.

Vöxtur – 30 dagar er óverðtryggður sparnaðarreikningur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þú getur lagt inn á reikninginn hvenær sem er og vextir ráðast af heildarinnistæðu.

Þú getur lagt inn á reikninginn hvenær sem er. Þegar þú pantar úttekt er umbeðin fjárhæð greidd á valinn ráðstöfunarreikning á 31. degi. Ber útgreiðsludag upp á dag sem er ekki bankadagur fer greiðslan fram næsta bankadag.
Hægt er að óska eftir úttekt með styttri fyrirvara gegn gjaldi samkvæmt verðskrá. Slík úttekt er háð samþykki bankans.
Sparnaður sem borgar sig að bíða eftir
Vextir hækka þegar innistæðan nær næsta fjárhæðarþrepi
Vextir eru greiddir í lok hvers mánaðar
Engin lágmarksinnstæða
Innistæða er laus til úttektar með 30 daga fyrirvara
Utan fríðindakerfis | Stig 1-2 | Stig 3 | Premía | |
|---|---|---|---|---|
Mánaðarl. vextir | Mánaðarl. vextir | Mánaðarl. vextir | Mánaðarl. vextir | |
1. þrep (0-5 millj.) | 7,40% | 7,40% | 7,50% | 7,60% |
2. þrep (5-20 millj.) | 7,50% | 7,50% | 7,60% | 7,70% |
3. þrep (20-50 millj.) | 7,70% | 7,70% | 7,80% | 7,90% |
4. þrep (>50 millj.) | 7,80% | 7,80% | 7,90% | 8,00% |
Viðskiptavinir á fríðindastigi 3 og í Premíu fá viðbótarvexti ofan á vexti viðkomandi fjárhæðarþreps:
Fríðindastig 3: 0,10 prósentustig til viðbótar
Premía: 0,20 prósentustig til viðbótar
Þú getur stofnað Vöxt – 30 daga í Arion appinu eða netbankanum.

Fyrirvarinn hefst þegar þú pantar úttekt. Fjárhæðin er greidd inn á valinn reikning 31 degi síðar. Ef greiðsludagurinn er ekki bankadagur fer greiðslan fram næsta bankadag.
Já, þú getur óskað eftir að fá innistæðuna greidda út fyrr gegn gjaldi samkvæmt verðskrá. Bankinn þarf að samþykkja beiðnina.
Nei, reikningurinn er ætlaður fyrir sparnað. Ekki er hægt að tengja hann við debetkort eða nota hann til að greiða reikninga.
Þrepaskiptir vextir þýða að vextirnir ráðast af heildarinnistæðunni. Þegar innistæðan nær næsta fjárhæðarþrepi fær öll innistæðan vexti þess þreps.
Vextirnir eru greiddir í lok hvers mánaðar og bætast við innistæðuna. Þú getur einnig valið að fá þá greidda inn á annan reikning.
Ef þú ert á fríðindastigi 3 færðu 0,10 prósentustig í viðbótarvexti. Ef þú ert í Premíu færðu 0,20 prósentustig í viðbótarvexti. Viðbótarvextirnir bætast við vexti þess fjárhæðarþreps sem innistæðan fellur undir.
Að öðru leyti gilda almennir viðskiptaskilmálar Arion banka.