Í viðbótarsparnaði Arion getur þú valið á milli sjö fjárfestingarleiða, auk Ævilínu en með vali á Ævilínu færist inneign þín sjálfkrafa á milli fjárfestingarleiða og þannig minnkar áhætta eignasafnsins eftir aldri. Það er einfalt að breyta um fjárfestingarleið á Mínum síðum.
Markmiðið er að fjárfesta 73% í hlutabréfum og 27% í skuldabréfum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið. Vænt ávöxtun er því heldur hærri en í áhættuminni leiðum.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki 1
Aldur í Ævilínu | 30 ára og yngri |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 7,3% |
Sveiflur í ávöxtun | 5 af 7 |
Markmiðið er að fjárfesta 56% í hlutabréfum og 44% í skuldabréfum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið en þó minni en í sparnaðarleið 1. Vænt ávöxtun er því lægri en í sparnaðarleið 1.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki 2
Aldur í Ævilínu | 31 til 40 ára |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 6,8% |
Sveiflur í ávöxtun | 3 af 7 |
Markmiðið er að fjárfesta 37% í hlutabréfum og 63% í skuldabréfum. Sveiflur í ávöxtun eru minni en í sparnaðarleið 2 og vænt ávöxtun því lægri.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki 3
Aldur í Ævilínu | 41 til 54 ára |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 6,4% |
Sveiflur í ávöxtun | 2 af 7 |
Markmiðið er að fjárfesta 22% í hlutabréfum og 78% í skuldabréfum. Sveiflur í ávöxtun eru minni en í öðrum sparnaðarleiðum og vænt ávöxtun því lægri.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki 4
Aldur í Ævilínu | 55 til 60 ára |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 6,0% |
Sveiflur í ávöxtun | 3 af 7 |
Markmiðið að fjárfesta 100% í skuldabréfum gefnum út af ríkinu, innlendum fyrirtækjum og innlánum. Markmið er að ná góðri ávöxtun þar sem áhersla er lögð á áhættudreifingu og trausta skuldara.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki 5 - Innlend skuldabréf
Aldur í Ævilínu | 61 árs og eldri |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 6,1% |
Sveiflur í ávöxtun | 3 af 7 |
Markmiðið að fjárfesta 85% í erlendum hlutabréfum og 14% í erlendum skuldabréfum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar. Fjárfest er bæði í stökum eignum og sjóðum, mikil áhersla er lögð á að ná sem mestri áhættudreifingu.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki - Erlend verðbréf
Ekki hluti af Ævilínu | |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 6,8% |
Sveiflur í ávöxtun | 5 af 7 |
Iðgjöld eru lögð inn á innlánsreikning sem ber verðtryggða vexti skv. vaxtatöflu Arion banka. Þessi leið er ætluð þeim sem vilja lágmarka sveiflur á verðmæti inneignar sinnar svo og nýta sér kosti verðtryggingar.
Eignasamsetning - Lífeyrisauki - Innlán
Ekki hluti af Ævilínu | |
Nafnávöxtun sl. 10 ár | 5,6% |
Sveiflur í ávöxtun | 3 af 7 |
Meginhlutverk viðbótarlífeyrissparnaðar Arion banka - Lífeyrisauka er að ávaxta lífeyrissparnað sjóðfélaga og tryggja þeim hæstu mögulegu ávöxtun hverju sinni og til lengri tíma m.t.t. áhættu.