30.10.2026

Arion bank­i: Einka­við­ræður um kaup sér­hæfðs sjóðs í stýr­ingu Ís­lenskra verð­bréfa hf. á Blikastaðalandi ehf.

Arion banki hf. hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf hf. fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf. sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Það kaupverð sem er til umræðu í viðskiptunum rúmast innan þeirra 14 til 16 milljarða króna marka sem kynnt voru í kauphallartilkynningu bankans 25. september síðastliðinn.

Íslensk verðbréf eiga í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa ehf. um kaupin sem fyrirhugaður þróunaraðili verkefnisins ásamt því að ráðgert er að Klasi verði kjölfestufjárfestir í sjóðnum.

Viðræður aðila byggja á tilboði sem sjóðurinn lagði fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf. Vonir standa til að viðræðum um kaupin ljúki fyrir lok þessa árs með gerð kaupsamnings og að kaupin komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027.

Í árshlutareikningum Arion banka fyrir fyrstu níu mánuði ársins er Blikastaðaland ehf. metið á um  7,6 milljarða króna. Þar sem til staðar er óvissa varðandi fyrirvara tilboðs Íslenskra verðbréfa hefur ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. á þessum tímapunkti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
30. október 2026

Arion banki: Einkaviðræður um kaup sérhæfðs sjóðs í stýringu Íslenskra verðbréfa hf. á Blikastaðalandi ehf.

Arion banki hf. hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf hf. fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf. sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Það kaupverð sem er til umræðu í viðskiptunum rúmast innan þeirra 14 til 16 milljarða króna marka sem kynnt voru í kauphallartilkynningu bankans 25. september síðastliðinn.
Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.
Lesa meira
27. október 2026

Arion banki gerir sátt við fjármálaeftirlitið

Arion banki hefur gert sátt við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Sáttin er gerð í kjölfar athugunar eftirlitsins sem hófst í apríl 2024 og laut að fylgni bankans við lög um aðgerðir gegn markaðssvikum og lög um markaði fyrir fjármálagerninga. Með sáttinni gengst bankinn við annmörkum á verklagi og fellst á greiðslu sektar að fjárhæð 280 milljónir króna. Jafnframt skuldbindur bankinn sig til að ráðast í viðeigandi úrbætur sem þegar eru langt komnar.
Lesa meira