27.10.2026
Arion banki hefur gert sátt við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Sáttin er gerð í kjölfar athugunar eftirlitsins sem hófst í apríl 2024 og laut að fylgni bankans við lög um aðgerðir gegn markaðssvikum og lög um markaði fyrir fjármálagerninga. Með sáttinni gengst bankinn við annmörkum á verklagi og fellst á greiðslu sektar að fjárhæð 280 milljónir króna. Jafnframt skuldbindur bankinn sig til að ráðast í viðeigandi úrbætur sem þegar eru langt komnar.
Sáttin tekur til þess að bankinn hafi ekki sinnt tilkynningarskyldu sinni gagnvart eftirlitinu vegna hlutabréfaviðskipta tveggja viðskiptavina á árunum 2022 og 2023 þegar til staðar voru skýrar vísbendingar um mögulega markaðsmisnotkun. Annars vegar er um að ræða viðskipti sem athugun eftirlitsins leiddi í ljós og hins vegar viðskipti sem bankinn tilkynnti eftirlitinu um eftir að þau komu í ljós við úttekt sem bankinn réðst í að eigin frumkvæði í ljósi athugunarinnar. Þá var verklag og kerfi bankans til að greina og tilkynna grunsamleg fyrirmæli og viðskipti, þar á meðal þjálfun starfsfólks og stillingar sjálfvirks eftirlitskerfis, ekki talið fullnægjandi á þeim tíma þegar umrædd viðskipti áttu sér stað. Það er jafnframt mat fjármálaeftirlitsins að bankinn hafi ekki uppfyllt tilteknar kröfur laga um markaði fyrir fjármálagerninga um vörustjórnun, mat á tilhlýðileika og þekkingu og hæfni starfsfólks.
Bankanum þykir miður að ekki hafi verið staðið rétt að málum á þessum tíma og hefur allt frá því málið kom upp gripið til umfangsmikilla úrbóta. Hvað varðar aðgerðir gegn markaðssvikum hefur bankinn meðal annars innleitt nýtt alþjóðlegt eftirlitskerfi, þróað sjálfvirkar lausnir til að greina mögulega markaðsmisnotkun og endurskoðað reglur og verklag. Á sviði fjárfestaverndar hafa reglur og verklag einnig verið endurskoðað, spurningalistar vegna mats á tilhlýðileika verið uppfærðir, fræðsla til starfsfólks sem sinnir fjárfestingarþjónustu verið efld, ný eftirlitstól tekin í notkun og úttektir á fylgni við gildandi kröfur farið fram.