25.09.2026

Arion bank­i: Annar fasi sölu­ferlis Blikastaða­lands ehf. að hefjast – heild­ar­kaup­verð til­boða á bil­inu 14 til 16 millj­arð­ar króna

Í framhaldi af lokuðu söluferli sem Blikastaðaland ehf. var sett í fyrr á þessu ári hefur Arion banki ákveðið að bjóða nokkrum tilboðsgjöfum þátttöku í öðrum fasa söluferlisins. Tilboðin frá þessum aðilum gera ráð fyrir heildarkaupverði á bilinu 14 til 16 milljarðar króna.

Blikastaðaland ehf., sem er í eigu Arion banka í gegnum dótturfélagið Landey ehf., á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Tilboðin sem um ræðir gera ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar kaupverðsins verði greiddir í reiðufé við afhendingu en eftirstöðvar greiddar á síðari stigum. Fjárhæðirnar hafa ekki verið núvirtar.

Tilboðin eru háð fyrirvörum og endanlegir skilmálar liggja ekki fyrir. Á þessum tímapunkti er ekki til staðar skuldbinding varðandi sölu félagsins og því ekki tryggt að söluferlið leiði til viðskipta.

Vonast er til að öðrum fasa söluferlisins ljúki fyrir lok þessa árs en það er meðal annars háð utanaðkomandi þáttum og því ekki útilokað að hann taki lengri tíma.

Í árshlutareikningum Arion banka fyrir fyrstu sex mánuði ársins er Blikastaðaland ehf. metið á um  7,5 milljarða króna. Þar sem til staðar er óvissa varðandi fyrirvara tilboðanna hefur ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. á þessum tímapunkti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
21. október 2026

Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 28. október. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 29. október.

Arion banki birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 28. október, eftir lokun markaða.
Lesa meira
02. október 2026

Arion banki undirritar samning um viðskiptakt á sértryggðum skuldabréfum

Arion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum útgefnum af Arion banka á Nasdaq Iceland hf.
Lesa meira
25. september 2026

Arion banki: Annar fasi söluferlis Blikastaðalands ehf. að hefjast – heildarkaupverð tilboða á bilinu 14 til 16 milljarðar króna

Í framhaldi af lokuðu söluferli sem Blikastaðaland ehf. var sett í fyrr á þessu ári hefur Arion banki ákveðið að bjóða nokkrum tilboðsgjöfum þátttöku í öðrum fasa söluferlisins. Tilboðin frá þessum aðilum gera ráð fyrir heildarkaupverði á bilinu 14 til 16 milljarðar króna.
Lesa meira