31.03.2023

6,5 millj­arða króna hluta­fjáraukning Ice Fish Farm

Ice Fish Farm hefur lokið 44 milljóna evra hlutafjáraukningu, sem nemur um 6,5 milljörðum króna. Um er að ræða útgáfu rúmlega 18 milljóna nýrra hlutabréfa í félaginu. Fóru viðskiptin fram á genginu 27,6 norskar krónur á hlut sem felur í sér 5,2% afslátt frá lokagengi gærdagsins, 30. mars. Umfram eftirspurn var eftir nýju hlutafé félagsins.

Fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra fjárfesta kom að hlutafjáraukningunni, bæði nýir og núverandi hluthafar félagsins. Liður í viðskiptunum var einnig breyting lána frá stærstu hluthöfum Ice Fish Farm.

Þann 27. febrúar síðastliðinn tilkynnti félagið að það hefði tryggt sér lánsfjármögnun að fjárhæð 156 milljónir evra og var framangreind hlutafjáraukning hluti af þeirri endurfjármögnun. Nýtt hlutafé, ásamt lánsfjármögnuninni, verður notað til uppbyggingar lífmassa og fjárfestinga á næstu tveimur árum.

Arion banki ásamt DNB Bank og Nordea Bank veittu félaginu ráðgjöf og höfðu umsjón með hlutafjárútboðinu.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. nóvember 2026

Arion banki breyt­ir vöxtum óverðtryggðra íbúðalána með fasta vexti

Frá og með deginum í dag, 20. nóvember, lækka óverðtryggðir íbúðalánavextir, fastir til þriggja ára, um 0,40 prósentustig og verða 8,35%. Breytingin á aðeins við um ný lán.

Lesa meira
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira