20.06.2022

Al­votech skráð á Nas­daq New York

Þann 16. júní voru hlutabréf Alvotech Holding skráð á Nasdaq hlutabréfamarkaðinn í New York undir auðkenninu ALVO. Með skráningu hlutabréfanna á hlutabréfamarkað gefst fjárfestum kostur á beinni fjárfestingu í fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja. Arion banki, Landsbankinn og Arctica Finance voru meðal ráðgjafa Alvotech við hlutafjáraukningu í aðdraganda skráningar.

Á næstu dögum er stefnt að því að félagið verði jafnframt skráð á Nasdaq First North markaðinn hér á landi. Alvotech er eina íslenska fyrirtækið skráð á bandarískan markað og verður fyrsta íslenska fyrirtækið sem er skráð bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Við óskum starfsfólki og hluthöfum Alvotech til hamingju með áfangann. Nánar má lesa um skráninguna í tilkynningu Alvotech.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira