05.07.2022

Anna Sif Jóns­dóttir ráð­in innri endur­skoðandi Arion banka

Anna Sif Jónsdóttir hefur verið ráðin af stjórn Arion banka sem innri endurskoðandi bankans og mun hún hefja störf í haust.

Anna Sif hefur verið innri endurskoðandi Kviku banka hf. frá árinu 2013. Áður starfaði hún sem fjármálastjóri Regins frá 2009 til 2013 og Landic Property Iceland (Reitir) frá 2007 til 2009. Anna var sérfræðingur og verkefnastjóri hjá KPMG frá 2000 til 2006.

Anna Sif er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og er viðskiptafræðingur (cand. oecon) frá sama skóla. Hún er löggildur endurskoðandi og með próf í verðbréfaviðskiptum.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira