11.10.2023

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Inn- og útlánavextir Arion banka breytast í dag, miðvikudaginn 11. október.

Breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækka 30 dögum eftir tilkynningu. Vextir innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi.

Íbúðalán
  • Verðtryggðir fastir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 3,74%

  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 3,79%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,20 prósentustig og verða 9,60%

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 10,89%

Kjörvextir
  • Almennir verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir eru óbreyttir

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga eru óbreyttir

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána eru óbreyttir

Innlán
  • Vextir verðtryggðra sparnaðarreikninga hækka um allt að 1,00 prósentustig

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga og sparnaðarreikninga eru óbreyttir

Breytingar á vöxtum verðtryggðra íbúðalána eru meðal annars tilkomnar vegna þróunar á skuldabréfamörkuðum þar sem ávöxtunarkrafa og þar með fjármögnunarkjör bankans hafa farið hækkandi.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira