08.06.2023

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast inn- og útlánavextir Arion banka í dag, fimmtudaginn 8. júní.

Breytilegir vextir þegar veittra lána til einstaklinga hækka 30 dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán sem taka gildi 11. júní. Vextir innlána taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,05 prósentustig og verða 10,39%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,10 prósentustig og verða 9,30%

Verðtryggðir vextir íbúðalána haldast óbreyttir.

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,25 prósentustig.

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,25 prósentustig

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 1,25 prósentustig.

Innlán
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,60 prósentustig og sparnaðarreikninga um allt að 1,25 prósentustig.

  • Vextir verðtryggða sparnaðarreikningsins

    Framtíðarreikningur 0-18 ára

    hækka um 0,25 prósentustig og verða 1,25%.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
31. ágúst 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Arion banki, Stefnir og Vörður fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Lesa meira