13.05.2022

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast í dag, 13. maí.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,80 prósentustig og verða 5,59%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,61 prósentustig og verða 6,75%

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,70 prósentustig og verða 6,60%

Yfirdráttur og greiðsludreifing
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,00 prósentustig

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,70 prósentustig og verða 7,00%

Innlán
  • Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 1,00 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. nóvember 2026

Arion banki breyt­ir vöxtum óverðtryggðra íbúðalána með fasta vexti

Frá og með deginum í dag, 20. nóvember, lækka óverðtryggðir íbúðalánavextir, fastir til þriggja ára, um 0,40 prósentustig og verða 8,35%. Breytingin á aðeins við um ný lán.

Lesa meira
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi.

Lesa meira
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira