22.02.2022

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast frá og með deginum í dag, 22. febrúar.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 4,79%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,45 prósentustig og verða 5,69%

Verðtryggð íbúðalán
  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,35 prósentustig og verða 1,89%.

  • Verðtryggðir fastir 5 ára íbúðalánavextir lækka um 0,75 prósentustig og verða 1,49%

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 5,90%

  • Almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,10 prósentustig og verða 3,40%

Yfirdráttur og greiðsludreifing
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,75 prósentustig

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,50 prósentustig og verða 6,30%

Innlán
  • Breytilegir óverðtryggðir innlánavextir hækka ýmist um allt að 0,75 prósentustig eða haldast óbreyttir en vextir á t.d. veltureikningum haldast óbreyttir

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
31. ágúst 2026

Arion banki breytir vöxtum

Eftirfarandi breytingar á óverðtryggðum inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 3. september næstkomandi.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Leiðin að lánshæfu nýsköpunarfyrirtæki

Arion banki býður til fræðsluviðburðar í Borgartúni 19, fimmtudaginn 3. september kl. 17:00.

Lesa meira
26. ágúst 2026

Arion banki, Stefnir og Vörður fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki

Átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli þann 20. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal voru Arion banki, Stefnir og Vörður.

Lesa meira