28.06.2022

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast á morgun, 29. júní.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,00 prósentustig og verða 6,59%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,75%

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,00 prósentustig og verða 7,60%

Yfirdráttur og greiðsludreifing
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,00 prósentustig

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 1,0 prósentustig og verða 8,00%

Innlán
  • Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 1,00 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira