29.03.2023

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands breytast inn- og útlánavextir Arion banka í dag, miðvikudaginn 29. mars.

Breytilegir vextir þegar veittra lána hækka 30 dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán og innlán sem taka breytingum samdægurs. Öll ný útlán bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 1,00 prósentustig og verða 9,34%

  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru áfram 9,20%

Kjörvextir
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 1,00 prósentustig.

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta
  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 1,00 prósentustig

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 1,00 prósentustig.

Innlán

Breytilegir óverðtryggðir vextir veltureikninga hækka um allt að 0,50 prósentustig og sparnaðarreikninga um allt að 1,00 prósentustig. Vextir sparnaðarreikningsins Vöxtur – fastir vextir hækka um 1,05 prósentustig.

Verðtryggðir vextir íbúðalána haldast óbreyttir. Vextir verðtryggða sparnaðarreikningsins Framtíðarreikningur 0-18 ára hækka um 0,35 prósentustig og verða 1,00%.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira