03.10.2024

Arion banki breyt­ir vöxt­um 8. októ­ber nk.

Í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu óverðtryggðir inn- og útlánavextir Arion banka taka eftirfarandi breytingum:

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,25 prósentustig og verða 10,64%

  • Óverðtryggðir fastir vextir lækka um 0,6 prósentustig og verða 8,8%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána lækka um 0,25 prósentustig

Kjörvaxtalán
  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig

Yfirdráttarlán
  • Yfirdráttavextir lækka um 0,25 prósentustig

Innlán

Óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga lækka um allt að 0,35 prósentustig. Innlánsvextir veltureikninga eru óbreyttir. Vextir reikninga í erlendri mynt lækka um allt að 0,76 prósentustig, mismunandi eftir myntum og þeim breytingum sem átt hafa sér stað á stýrivöxtum viðkomandi lands.

Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Öll ný útlán bera nýju vextina frá og með 8. október. Breytingar á vöxtum inn- og útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira