26.11.2020

Arion banki fjárhags­legur bak­hjarl for­setal­ista HR

Forsetalisti Háskólans í Reykjavík verður kostaður af Arion banka næstu þrjú árin samkvæmt samstarfssamningi sem Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, undirrituðu í HR í dag. Á forsetalista HR komast þeir nemendur sem ná bestum námsárangri á hverri önn.

Markmiðið með forsetalista HR er að hvetja nemendur sem ná framúrskarandi árangri í námi til dáða og vekja athygli á árangri þeirra. Nemendur á forsetalista hljóta styrk sem nemur skólagjöldum einnar annar. Auk þess er mikill heiður fólginn í því að komast á slíkan lista og getur viðurkenningin til dæmis skipt máli þegar sótt er um framhaldsnám eða atvinnu. Arion banki mun samkvæmt samningnum kosta styrki til nemenda á forsetalistanum næstu þrjú árin en samtals nemur verðmæti samningsins 45 milljónum króna.

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, sagði við undirritunina að samningurinn sé í takti við áherslur HR á gæði náms og náin tengsl við atvinnulífið. „Að ljúka háskólanámi í hæsta gæðaflokki er ein besta undirstaða sem einstaklingur hefur fyrir þátttöku í atvinnulífi og samfélagi. Í HR leggjum við því mikla áherslu á að hvetja nemendur til að sinna námi sínu sem allra best. Forsetalistinn gegnir þar lykilhlutverki og því er það sérstaklega ánægjulegt að fá stuðning Arion banka um leið og samningurinn styrkir tengingar HR við atvinnulífið enn frekar.“

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, sagði „Á forsetalista HR er ungt og kraftmikið fólk sem mun gegna lykilhlutverki við að skapa framtíð okkar samfélags. Það er okkur mikil ánægja að geta stutt efnilega nemendur Háskólans í Reykjavík og hvatt þá til dáða með þessum hætti. Við hlökkum til samstarfsins.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira