04.04.2023

Arion banki ger­ir sátt við Sam­keppnis­eftir­lit­ið

Arion banki hefur gert sátt við Samkeppniseftirlitið vegna brots á sáttargerð bankans og eftirlitsins frá árinu 2017. Með sáttinni viðurkennir bankinn frávik frá þeirri framkvæmd sem kveðið var á um í sáttargerðinni frá 2017. Arion banka þykir miður að mistök hafi verið gerð og hefur gripið til viðeigandi ráðstafana til að tryggja rétta framkvæmd.

Sáttargerðin frá árinu 2017 lá til grundvallar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 24/2017, Aðgerðir til að efla samkeppni í almennri viðskiptabankaþjónustu við einstaklinga og lítil fyrirtæki. Þar var kveðið á um að óheimilt sé að innheimta uppgreiðslugjald vegna lána til lítilla fyrirtækja sem bera breytilega vexti.

Í tengslum við úttekt Samkeppniseftirlitsins á framkvæmd bankans á ákvæðum sáttargerðarinnar var farið yfir tæplega þrjú þúsund lánasamninga við lítil fyrirtæki. Kom þá í ljós að í níu lánasamningum höfðu mistök verið gerð þar sem í þeim var kveðið á um uppgreiðslugjald. Í einu tilviki hafði uppgreiðslugjald verið innheimt og hefur það verið endurgreitt.

Bankinn hefur farið yfir alla lánaferla sína og m.a. uppfært skjalgerðarferla, komið á sjálfvirkri vöktun vegna skráningar í útlánakerfi bankans og aukið fræðslu fyrir starfsfólk. Sáttin við Samkeppniseftirlitið felur í sér að bankinn fellst á að greiða sekt að upphæð 80 milljónir króna.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira